Aníta og Sísí / Ekki gleyma gestabókinni
04.09.2006 21:29:50 / anitadogg

komnar með nýja síðu

Við erum komnar með nýja síðu þessi er í rugli

hún er

blog.central.is/anitaogsisi

sísí sendu mér í sms hvaða lykilorð þú villt hafa


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 19:42:18 / sisi

Helgi!!! NAMMIDAGURINN MINN

Dagurinn í dag er laugardagur og er það því nammidagurinn minn eini sanni og omg það er ekkert grín að vera nammi svín þegar kominn er laugardagur því að ÉG byrjaði að vakna kl 6 í morgun og langa til að fara á fætur og fá mér nammi! Píndi  mig samt til að sofa til 20 min yfir átta og þá gat ég ekki meira því að ég var farin að dreyma um nammi og stökk ég þá fram úr rúminu og fékk mér nammi:D:lol: mmm já það var gott en ég var samt fljót að fá ógeð! Svo að það má seigja að ég sé búin að hakka í mig fullt af nammi og gosi og öllu í dag og er frekar sprungin!

En nóg með nammið! Ég reyndi að hringja í mömmu núna í gær eða hinn en hún var svo upptekin að hún gat ekkert talað við mig:cry: Þessi nýji vinnumannsi er bara að fara og eitthvað alskonar vesen með þessa vinnumenn! svo að hún ætlar að hringja í  mig þegar hún getur :D Allt að gerast hjá múttuni minni!

Anítan sjálf er í ferðarlagi með mótorhjólastelpunum held ég svo að það er ábiggilega gaman hjá henni þessa helgina :D En ég er samt ekki búin að gera neitt voða mikið! í dag vorum við bara í garðinum og svona að gera fínt hérna og ég rakaði blettinn eftir að það var búið að slá og svona... alveg fínt sko :D Svo ætlum ég og Ástin mín að hafa það kósý á eftir og horfa á video og éta snakk og sósu:D:D mm það er æði æði æði! Svo á morgun þarf ég að fá sérlega hjálp hanns við að kenna mér stærðfræði því að ég á víst að skila stærðfræði heftinu mínu á mánudaginn svo að mér er vissara að drulllast til að gera eitthvað í þessu :$:$8) En þið vitið alveg að ég get allt svo að þetta er ekkert mál :D ;) :!:

Já á föstudaginn var ég bara að búa til mat í skólanum :D gerðum mat og borðuðum svo og svo þurfti að þrífa allt!! Þetta tók allt sinn tíma og var frá kl 15 min yfir átta til korter í 2...  og mín lenti í uppvaskinu alveg ein svo að úff það var erfitt en samt sem áður var þetta alltsaman mjög gaman og ég og stelpan sem að var með mér í hóp gerðum karrý súpu og mm hún var geggjað góð! Mér fanst það bara best af öllu sem að var búið til :D Fór svo í H&M og keyfti mer brjóstahaldara :D alltaf gaman að kaupa sér brjóstahaldara þegar maður hefur ekkert að gera hehe! Svo sóttu Stebbi og Kolla mig í Aabenraa svo að ég þurfti ekki að taka strætóinn sem að keyrir alltaf klukkan 3 en ég er alltaf búin korter í 2 í skólanum svo að ég þarf að bíða í klukkutíma og korter sem að er ekki spennandi:^) En ja var komin heim kl 3 fyrst að þau sóttu mig og það var alveg mjög næs sko!

Í næstu viku er Stebbi að fara í skólaferðarlag með leikskólanum sínum í risa rússíbana park og er að fara gista þar í 2 nætur.. svona eins og ég gerði með skólanum að gista í 2 nætur en já ekki má gleima að ég þurfti að gista á steingófli í hlöðu en audda fær hann eitthvað mikið meira næs! fær að sofa í rúmi og alles og gera eitthvað skemmtó :D En það er bara gaman fyrir hann hehe þá hef ég rúmið ein :D hehe og líka þá ætla ég að klára sauma myndina mína á meðan ég er ein að gera ekki shit!:P þetta verður bara gaman!

jah og hvad skal jeg så skrive? hef ekki grænan get ég sagt ykkur! því að ég er svo upptekin á msn að ég skrifa meira síðar!! :D og aníta komdu svo  með blogg og ég þarf að tala við þig á msn!  hef svoldið að seigja þer!?


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 14:25:41 / sisi

Dansk dansk og dansk

Hæ hó!

Er það ekki ég sem að ætti að skella inn bloggi núna8) Sé að það er búið að setja nýjan og flottan lit á síðuna :D Aníta fjólu bleika :D flottur litur ;) En já Aníta ég er með frétt handa þér?! það er að það þýðir ekkert fyrir þig að senda mer sms í íslenska símann um að koma á msn eða eitthvað því að hann er búinn að vera tíndur í marga daga og finst ekki enþá... svo... þá er það bara danski;) Og Inga ég er oft á msn þú ert aldrei á msn sjáðu til :D hehe eða bara að við séum alltaf á sitthvorum tímanum?

En já eitthvað úr lífi mínu sem að þú vilt fá að vita systa? hmm ég er búin að vera í skólanum og skólanum og já skólanum og að heyra dönsku og dönsku og dönsku :D hehe það er nú svosem alveg fínt sko :D En já ég verð bara að seigja að það geingur alveg ágætlega get ég sagt þér... Ég skil nú ekkert allt en þetta geingur allt upp á endanum hjá mér sko!:) og Stebbi er líka rosa duglegur að hjálpa mér við stærðfræðina svo takk fyrir það ástin mín (K)(L):haha:

Helgin var bara alveg fín...Fór að vinna á laugardeiginum og hélt minn heilaga nammi dag sem að endaði með of miklu nammi og flökurleika! en samt nammidagur og það var fínt :D fékk mér hamborgara og franskar og svonna :D mmm Og svo fórum við til þýskalands að kaupa gos og allskonar... Svo á sunnudeiginum var farið og keypt hjól í afmælisgjöf handa Grétari... og Stebbus keypti sér svona tæki í bílinn til að setja geisladisk í æj hvað heitir það útvarp eða eitthvað..???? hjálp???

Jæja ég er of upptekin á msn svo að ég skrifa meira seinna!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 17:52:47 / anitadogg

smá stess dagur

Ég er búin að vera á fullu að passa svo í gærkvöldi kom nýr vinnimaður og við náðum í hann um hálf tíu í gærkvöldi og hann gisti hjá okkur voða kurteis og líklega ágætisstrákur,svo í morgun keyrðum við með hann hjá göngunum og hittum pabba og hann tók á móti honum:|

Jæja þá er ég búin að yfirstíga mestu hræðsluna:S:S
það eru komnar 4 vikur frá því ég datt á hjólinu ég er samt ekki búin að jafna mig alveg er ennþá illt allstaðar en ekki eins mikið og fyrst þetta er að lagast en tekur bara sinn tíma ég er td enn frekar bólgin á öklanum:cry:


En ég ákvað að fara í dag að hjóla.Ingi var eitthvað að keyra út um allt og finna rétta staðinn og ég varð alltaf stressaðri og stressaðri :$við vorum í mosó svo við ákváðum að kíkja í grifjurnar í mosó ég var náttla ein stress hrúfa drap svoldið á hjólinu og svona það lét líka eitthvað kjánalega var bara alveg að drepa á sér það er bara enginn millivegur á hjólinu annað hvort festist það í botni eða drepur á sér nei nei ég segji svona Ingi lagaði þetta fyrir mig ég hjólaði ekkert lengi bara svona yfirstíga mestu hræðsluna og það gekk bara vel var reyndar svoldið smeik við að fara úr fyrsta gír í annan en gerði það nú samt;)
Við kíktim svo á pabba hanns Inga því Erla Sigríður systir Inga var með okkur í grifjunum fengum okkur smá hressingu og héldum svo bara heim á leið þannig að þetta var stressandi dagur fegin að hann er búinn;)

Svo ætlum við bara að hafa notarlegt kvöld í kvöld erum ekkert að vinna í dag og á morgun svo kannski maður skelli sér á pottinn og bjór aldrei að vita:D

Aníta8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 22:42:42 / anitadogg

yelló

Hmmm hjá mér er allt búið að vera á fullu eins og vanalega þessa dagana :|


Á sunnudaginn fórum við á mótorcross keppnina í sólbrekku sem ég ætlaði að keppa í en gat svo ekki út af slysinu mínu þarna um daginn:S
ég var að passa en bað um að fá að fara kl 12 því keppninn hafði verið auglýst kl 13 í víkurfréttum og nei nei ég var ekki sátt því þegar við komum var stelpu keppninn búin við hittum Erlu sigríði systir hanns Inga og hún sagði hva voðalega komið þið seint þetta er löngu byrjað ég kom hérna 9 í morgun mér langaði að öskra þetta var síðasta keppni sumarsins og ég missti af stelpunum:evil::evil:
við samt stoppuðum í smá stund og horfðum á strákana við vorum náttla búin að borga okkur inn:$


Svo var ég að passa á mánudaginn og við fórum svo í bæjinn í gær að kaupa inngjafabarka í hjólið mitt og skóladót fyrir Óðinn það er víst byrjaður skóli hér:)
Ingi setti síðan barkann í fyrir mig alltaf jafn elskulegur ég var eitthvað að sjá um heimilið ganga frá og svona,við hjálpuðumst að við að ná honum úr hann var eitthvað fastur í og ég var að reyna að toga á fullu svo loksins losnaði hann og ááá fékk hann beint í nefið geggjaður dofi ég er bara alltaf svo heppinn:$
já við fórum líka niðrí yamaha því ég ætlaði að skrá hjólið mitt svo ég geti tryggt það en nei nei alltaf sama heppnin þá hefur þetta hjól aldrei verið skráð á Íslandi svo það er ekki hægt:cry:


svo í dag,morgun og hinn eða miðvikud,fimmtud og föstudag er ég að passa frá 8 til 16 því þau skelltu sér út hjónin:|
Þannig að ég bara tók eitthvað til eins og vanalega áðan og er svo bara að fara að koma mér í hátinn þurfum að vakna um 7 í fyrramálið ég er líka eitthvað hálf slöpp held að ég sé að verða lasinn vonandi ekki er eitthvað slöpp í eyranu og hálsinum:cry:

Já og Sísí ég er búin að gera síðu á barnalandi þú ferð bara í heimasíður barnanna og finnur mig í anita þar eru myndir frá verslunarmannahelginni þú mátt endilega setja þær hingað þegar þú getur eins og við vorum búnar að tala um góða systa mín:P

Aníta slappa:cry:


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 18:03:46 / sisi

Ég er enn á lífi!

Já eins og flestir vita þá er skólinn byrjaður hjá mér og byrjaði  með þessu svaka "skemmtilega" 2 nætur skólaferðarlagi8| Það byrjaði nú alveg svaka vel sko en það versnaði nú þegar ég fékk að vita hvar við áttum að sofa???!!!!!! við áttum að sofa á sveitabæ í HLÖÐUNI í hálminum og á steingólfinu :S og ég sem að var svo gáfuð að ég hélt að ég ætti sko að taka með mér lak en nei þá var það svona þunn dýna svona sem hjólamenn og svona eru með!!!!8|8|8| og það fyrsta sem að ég fór að hugsa var úff hverju á ég að sofaá.. í svefnpoka á steingólfi !! og já þannig var það nú... Svo var það að strákarnir voru svo leiðinlegir við mig að ég veit ekki hvað þeir voru að pæla því að þeir voru sko of töff til að vera til og kölluðu mig alltaf björn því að þeir kunnu ekki nafnið mitt :S:S ég alveg ehh það er sigurbjörg eða kallið mig bara SÍSÍ því að þið vitið alveg að allir kalla mig nú bara Sísí! en neiiii þeir vildu vita hvort ég ætti kærasta og hvort að þeir mættu ekki vera kærastinn minn og sovna fáranlegar spurningar! og hvort að ég vildi ekki bara sofa hjá þeim :S uhh nei takk! En já svo var það víst þannig að vasaljósið mitt bilaði og ég svaf upp á loftinu í hlöðuni svo að það var alveg dimmt þar en ég þurfti að fara þangað til að ná mér í nýjar buxur því  mínar voru blautar! komu þá ekki 2 af þessum strákum og króuðu mig af útí horni og shit hvað mín var hrædd og ég sá ekkert því aðþeir lýstu bara vasaljósunum sínum í augun mín! þeir voru eitthvað bara HÆ BJÖRN og hvennig er svo kærastinn þinn í rúminu og ertu búin að sofa hjá honum og ég alveg vá látið mig bara vera og ykkur kemur þetta bara ekkert við???!!!! neinei þá grípur bara einn þeirra í rassinn á mer og ég fríka svoleiðis út að ég kýli þá báða og byrja bara að berja þá og öskra svo þetta gerir þú ALDREI aftur.. og hljóp svo í burtu því að ég veit sko ekki hvað þeir ætluðu að gera við mig þarna í myrkrinu því að það sá þetta einginn! En já það hefur einginn þeirra sagt orð við mig síðan:D:D8) Þar komumst við að því að Sísí litla er hörkukvendi þrátt fyrir að vera lítil :D hehe aldrei hef ég nú ráðist á nokkurn og ekki datt mér í hug að ég gæti eitthvað gert við þessa stráka sko en þetta virkaði!

Og þannig var skólaferðarlagið mitt! Og ég svaf sko ekki vel þarna með öllum pöddunum og svona! líka það voru læti í strákunum alla nóttina og ég frekar hrædd við þá! vaknaði líka við það að þeir stóðu allir í kringum mig að lýsa á mig með vasaljósi! svo...?? biðað fólk eða hvað? og já ekki má gleima að þeir kölluðu mig líka ísbjörn og það finst mer það findnasta því að ætla að þeir haldi að fólk á íslandi búi í snjóhúsum og svona hehehehehe!!!????? það er góð spunring því að ég hef verið spurð að því hérna hvort að maður búi í snjóhúsum á íslandi??? veit fólk bara ekkert eða...?

En já svo er annars bara fínt í skólanum sko... Ég á í svolitlum erfiðleikum með að skilja allt sem að kennararnir eru að seigja og svona en það kemur bara og guð hjálpi mér þegar ég á að fara í stærðfræði á morgun og það á dönsku:haha: Mér hlakkar til að sjá hvernig það geingur nú hjá mér! Ég veit sko ekkert um stæ á dönsku! En eins og ég sagði þá kemur þetta alltsaman!

Stebbi er bara alltaf í leiksólanum og það er náttúrlega bara rosa gaman hjá Stebbus litla í leikskólanum :D hann er alltaf í bílaleik í tölvuni :D heheh og svo er hann loks að fara drulla sér í bílprófið þessi elska mín! jeyjj það verður nú fínt 8)

Og já Aníta ég setti inn nokrar myndir af mér svona svo að  þú getir nú séð litlu systu :D alveg glænýjarmyndir teknar í gær ;) ég er ekki alveg nógu dugleg að setja myndir... en þarna komu nokkrar! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 18:06:27 / anitadogg

loksins

Jæja loksins er kominn pása búið að vera brjálað að gera8|

Við fórum vestur um síðustu helgi Fúsi kom með því hann langaði að prufa nýja hjólið sitt í fyrsta skipti og það gekk bara ágætlega hjá honum smá svona problem að komast af stað drap nokkru sinnum á hjólinu en þegar hann komst af stað gekk bara vel hjá honum hann meira að segja prjónaði smá 8|

Ingi hafði verið svo góður að laga hjólið mitt á föstudaginn hann lagaði beigluna að aftan og fékk reyndar eitthvað gamalt kúplingshalgfang hjá Linnet hann hreinsaði líka loftsíuna og loftsíuboxið ég hafði farið með blöndunginn í hreinsun svo hann setti hann í og gerði hjólið reddí og tók það með vestur og allan fatnaðinn minn svo ég gæti hjólað ég vildi það nú ekki má ekki hjóla fyrr enn 25 ágúst samkvæmt læknisráði enn hann tók þetta með því hann vildi líka prufa hjólið það var í góðu lagi en ég vil ekki hjóla fyrr enn það er búið að skipta líka um inngjafabarkann ég er neflinlega skíthrædd við hjólið ég er ekki hrædd við það að hjóla aftur en er hrædd við hjólið mitt útaf þessu sem gerðist:!:

En það var farið með Fúsa í einhverja hrikalega hjólaferð upp hjá vatninu hann datt í einhverjum drullupoll og svo var hann alltaf að drepa á hjólinu sem ég skil vel miðað við fyrstu hjólaferð hann varð svo þyrstur af því að setja hjólið alltaf í gang að hann gat þetta ekki lengur og tíndi sér nokkur ber til að svala þorstanum mér finnst það geggjað fyndið sérstaklega þegar hann var að segja frá þessu:haha:

Við vorum í sveitinni þangað til á mánudag fórum heim eftir hádegi keyrðum Fúsa á bsí og kíktum á Dúddann það var bara fínt við stoppuðum nú ekki lengi því ég þurfti að fara að passa kl 17:30 og Ingi að vinna kl 20 svona var þetta líka á þriðjudaginn og svo þurfti ég að passa á miðvikudaginn kl 7:40 til 14 þannig að ég var alveg dauð í gær
Það var bílslys hérna rétt hjá okkur í gær um kvöldmata leitið löggubílar 3 sjúkrabílar slökkviliðið og allskonar það blikkuðu ljósin þarna til tíu hálf ellefu í gærkvöldi og því miður að þá dóu 2 karlmenn þarna og ein stelpa dó líka á kjalarnesi þannig að það dóu 3 í umferðarslysi á Íslandi í gær þetta er ótrúlegt:cry:

Við kíktum í rvk í dag fórum í kringluna og hittum Sigga og Lylu með börnin við vorum nú ekki lengi ekki mikið að gera þarna:|

Og já ég má nú ekki gleyma einu við leigðum mynd í gær sem heitir HOSTEL hún er geggjað ógeðsleg og það er alveg ótrúlegt það er íslendungur í myndinni sem heitir Óli í myndinni hann talar smá íslenski í myndinni samt er hún öll á ensku og allir hinir enskir þetta var ekkert smá skrítið að heyra:S:S

Jæja best að fara að elda er að fara að gera pitsu mmmmm ég elska pitsu:D

Aníta


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 15:13:19 / sisi

Skólinn á morgun !!!!

Jæja þá er það bara skólinn sjálfur á morgun!

Þá er kominn tími til að seigja bless við sumarfríið og fara aftur í skóla! Seigja líka bæ við að sofa leingi! eða reyndar er ég hætt að sofa jafnleingi en þarf að fara vakna fyrr! En þetta verður fínt :P Ég á að mæta á morgun kl 9 til kl 1 og ætla að taka Grétar með mér svo að ég skilji þetta nú alltsaman alveg 100% þar sem að það á að seigja nánar frá þessu ferðarlagi og allskonar mikilvægt! En þó svo að ég þurfi að mæta 9 á morgun vakna ég samt 6 því að þá vaknar Stebbi og fer um 7 og þá tekur því ekkert fyrir mig að fara bara að sofa aftur því að ég tek strætó kl eitthvað yfir átta! Þannig að þá ælta ég að vera dugleg og fara út að hlaupa og svona :haha:

Í gær þá fórum við í dýragarð sem að var sko ALVURU dýragarður!!! Það voru spes staðir sem að maður átti að keyra og sér til að labba! Þar sem að var keyrt voru td. Ljón þúst alvuru ljón að éta heila alvuru belju með hausnum og öllu og voru búin að rífa eina löppina af beljuni! Og það var líka svona stórt kalla ljón með svona stóran loðinn kraga og ekkert smá stór sko! Þar sem að maður átti að keyra voru líka gírafar og sebrahestar og bara allskonar! Svo þar sem að við vorum að labba voru lausir apar og einn bara byrjaði að hlaupa á eftir Kollu :lol: hehe og hún hljóp alveg á undan honum :D hehe Það kom líka einn api að mer eitthvað hálf hoppandi og ég varð nú bara skít hrædd get ég sagt ykkur!!!!:^) Svo voru líka górillur og fleiri rosa sæt og skemmtó dýr! Þannig að þetta var bara mjög skemmtilegur dagur og ekki má gleima að þetta var nammidgaur svo að ég fékk mér alskonar nammerí! og líka rifjasteik sem að var svo mmmm góð að bara mmmm!!!! :D

Bless í bili!!!!! og Aníta á að blogga næst! þegar hún kemur frá sveitini!:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 08:30:48 / sisi

hmm já?!?

:lol::lol:

Ég er búin að vera alveg rosa dugleg og vakna alltaf kl 9 og fara svo út að hlaupa! Vakna ekkert klukkan níu til að fara út að hlaupa heldur þá er Stebbi byrjaður í skólanum og þá sofnum við snemma og  þá get ég bara ekkert sofið leingur en til 9! Fara út að hlaupa á morgnanna og svo líka á kvöldin og meira að seigja Grétar er svo duglegur að hann kemur oftast með mér að hlaupa!:haha:

Samt það er ekki neitt voðalega spennandi að hanga hérna ein og Stebbi í skólanum væri mikið frekar til í að vera líka í skólanum en hann byrjar nú á mánduaginn;) og á Morgun fer ég að vinna svo að þá er þetta í lagi! En svona til að eyða tímanum og svona tók ég til í herberginu okkar í gær og þurkaði af og allt! En því miður þá er það komið í rúst núna aftur!:^) Ég og Grétar tókum svo til í eldhúsinu og stofuni og svona þar sem að Mummi og Kolla voru ekki heima:!:

En já hann Stebbi er svo duglegur strákur hann fer sjálfur í leikskólann og kemur sjálfur heim! og trúið mér þetta er leikskóli!;);) hehehe! samt ábiggilega rosa gaman ég efast ekki um það !!!! Hann fær heitan mat og alles í skólanum 2 á dag! og svo má maður alltaf fá sér ávexti! það er geggjað! Þá mindi ég sko bara borða ávexti allann daginn :D mmm nammi!

Pabbi átti afmæli í gær :D og til hamingju  með það :D *knús* hann er þá orðinn eldgamall!!!!! 49 og verður hann þá bráðlega helmingurinn af hundrað váááaáá´! En já ég hringdi nú í hann í gær og hann skildi ekkert í því hennig ég hefði munað eftir afmælinu... hehe og hvað þá hvað hann væri gamall!!!! Hann var að borða svínakótilettur í tilefni dagsins síns! mmm væri maður til í það !!! o já!

* Sísí Eva *


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 20:53:36 / anitadogg

Ég bý sko á ÍSlandi

Jæja verslunamannahelgin búin:S


Við fórum á laugardagskvöldið á Bergstaðarbakka á orkumótið:!:
Það voru allir að borða eftirrétt þegar við komum við ákváðum að setja upp tjöldin við vorum með eitt fyrir krakkana og eitt fyrir okkur svo var hljómsveit sem spilaði rosa gaman allir fóru að dansa og drekka bjór sem var þarna:)


Krakkarnir fóru að sofa um 1:30 og þau alveg steinsofnuðu,ég fór svo að sofa um 3:30 og omg mér var svo kallt grasið var allt blautt og ég gleymdi að taka með mér skó var bara á puma skónum fékk reyndar poka en mér var svo kallt á tánum að ég gat ekki sofnað á endanum fór ég inní bíl og svaf þar eitthvað en ekki mikið svo kl 10 vaknaði ég við það að skottinu á bílnum var skellt mér dauðbrá þá var Victoría vöknuð og búin að klæða sig svo ég vakti Óðinn og við fórum í morgunmat svo lgum við bara í leti Ingi hjólaði ekki ég er enn að bíða eftir að ég meigi það sem er 25 ágúst :$:$


Svo bara hádegismatur kl eitt við gerðum nú svo sem ekki mikið yfir daginn krakkarnir fóru í ratleik sem var enginn smá ratleikur tók tvo eða þrjá tíma svo kl sjö var fordrykkur og matur kl átta það voru kjötbollur,kartöflumús og meðlæti við fórum svo bara ekkert seint að sofa milli eitt og tvö held ég:|
svo kl sex vakti Óðinn mig honum var svo kallt ég kíkti út og það var bara snjór á tjöldunum eða semsagt það hafði ringt og svo komið smá frost við búum sko á ÍSlandi alltaf kallt svo ég fór með hann inní bíl og setti bílinn í gang og það voru 2 gráður úti mælirinn  í bílnum sýndi það svo kom Ingi og ég náði í Vikku og við fórum á rúntinn komum til baka um sjö og lögðum okkur ég og krakkarnir í bílnum en Ingi í tjaldinu svo tókum við saman og lögðum af stað heim í hádeginu þannig að við losnuðum við mestu umferðina sem betur fer:D


Ingi grillaði svo geggjað kjöt í kvöldmatinn og ég kíkti svo á Helgu og systir Elmars að föndra þær voru að gera þrívíddar kort og ég í mínu skrapi sem gengur bara ágætlega
Ingi og ég höfðum leigt video sem við ætluðum að horfa á þegar ég kæmi til baka kom um hálf eiiefu og við byrjuðum en sofnuðum bæði yfir myndinni svo við fórum uppí og sváfum til að verða tólf í hádeginu alveg búin eftir helgina:|


Í dag erum við aðalega búin að hanga heima kláruðum myndina og Ingi eldaði pulsur svo þurfum við að fara snemma að sofa ég þarf að passa á morgun frá 5:30 í fyrramálið til 2 eða 3 og Ingi fer að vinna 6 til 6 og svona verður þetta líka á fimmtudaginn hjá okkur vinna vinna


Bið að helsa í bili


Aníta


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 18:09:55 / sisi

Lítil lús í krús ;)


Halló halló!
er ekki  komið að því að skella einu bloggi hérna inn... Ég hef alveg stór frétt að seigja frá og það er að ég fékk lús...???  LÚS!!! ég fann þessa ljótu lýs að nóttu til þegar allir voru sofandi og aumingja aumingja ég var svo hrædd að ég veit ekki hvert ég ætlaði!! vakti Stebba og hann var svo myglaður að honum var bara alveg sama um lús.!! en ekki mér því að ég var svo hrædd að ég vildi fá mömmu... tek fram að ég hef aldrei feingið lús áður! loksins kom morgun og þá fór ég í næstu frétt sem að heitir vinnuna... já ég bara byrjuð að vinnna ;) í vinnuni hjá Mumma.. en ég þarf bara að vinna einusinni í viku og það er að þrífa svona kaffi skúra.. vaska upp og svonna.. alveg rosa gaman :D:D:D En já ég er ekki  með neina lús leingur :D svo Óðinn þú hefur nú leifi til að kalla mig lúsífer því að ég kallaði þig svo leingi lúsífer eftir að þú fékst lús :D:D

En hvað er meira búið að ské?? Ég er búin að vera rosa dugleg að fara út að hlaupa alveg hvern einastaaa dag! Minnist þess allavega ekki að hafa ekki farið! og drekka vatn en ekki gos.... og borða ávexti en ekki nammi :D  Svo í gær þá fórum við á svona Íslendinga hátíð sem að var eiginlega alveg glötuð.. Það voru ekkert nema geitungar þarna og þeir bara létu mann ekki í friði svo kom einn og hann bara settist á hendina á mér og ég var svo hrædd að ég fór næstum að gráta!!!! en Mummi rak hann af hendini á mér svo að ég lifði það nú af.. en ég var samt ekki lángt frá því að halda að ég myndi ekki lifa það af! En við fundum það út að íslendingarnir þara væru ekkert sérlega skemmtó svo við bara fórum! en samt þá var alveg hellingur af drekaflugum þarna og þær eru sko sætar... gera heldur ekki neitt! og fiðrildin þau eru svo sæt :D:D

Bráðlega fer svo skólinn hjá mér að byrja eða réttara sagt eftir viku! og skólinn byrjar á 2 nætur ferðarlagi!!! eða það seigir bréfið frá skólanum allavega.. Ég held að það verði bara gaman.. svona fyrir utan geitungana og svona en já þetta er svona óvissuferð! Stebbi er líka að fara að byrja í skóla og hættir því að vinna :) og þá erum við á sama tímanum í stað þess að þegar ég kem heim úr skólanum þá er hann farinn í vinnuna og þegar ég er sofnuð þá er hann að koma heim úr vinnnuni og þegar hann vaknar þá er ég í skólanum! en þá verðum við bæði í skólanum :D  sem að er bara ágætt held ég!:P
Stebba er farið að líða betur í höndinni sinni og getur gert mikið meira.. en samt ekkert of mikið því að þá finnur hann til! en þetta er allt að koma og ástinni minni er að batna(K)(L)
Ég hef ekki mikið meira að skrifa um svona sem að ég man!

* Litla Rækjan *


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 18:36:13 / anitadogg

jelló

Hæ hæ ég var að fatta að það var vika í gær síðan ég slasaði mig :)

Tíminn líður og líður:)

 Ég er enn bólgin á löpinni enn er orðin betri enn ekki nógu góð erfitt að sofna á kvöldin,get ekki labbað lengi og eitthvað svona blabla:$

 Ég fór í afmælið á sunnudaginn það var bara fínt.Í gær fór ég í bæjinn að kaupa mér meira skrap dót átti svo lítið að ég gat ekki haldið áfram svo ég verslaði svoldið svo ég gæti gert meira þetta er svo gaman og mér er farið að hlakka til þegar Sísí kemur svo ég geti sínt henni þetta,ég er byrjuð á albúmunu hanns Óðinns er að gera síðan hann fæddist geggjað já ég semsagt fór að versla þetta og Inga María kom með mér og litla prinnsessan hennar kom með hún Sara Katrín.Óðinn,Vikka og Thelma voru eftir með Heiðari svo þurfti hann að fara að vinna kl fimm svo Óðinn stóri varð að passa stelpurnar í smá stund það gekk bara vel :D

Svo fór Inga María að skella í pitsadeig og við elduðum pitsu mmm hún var svo góð,á meðan Inga var að gera deigið sá ég um Söru Kartínu skipta um föt og bleiju og svona ohh hún er svo mikil dúlla :haha::haha:

Svo eftir kvöldmat kom Aðalheiður og Erla og við skröpuðum aðeins gaman gaman:lol: Við vorum komin heim yfir ellefu í gærkvöldi bara allir liggur við í háttinn vorum eitthvað svo sibbin en ég nottla sofnaði ekki fyrr enn tvö eða eitthvað að drepast í rifbeinunum á framan og aftan og hálf erfitt að anda ooooo þetta hlítur að fara að hætta

Ég var að passa Aron og Alex í dag og í gær Helga er að fara að flytja þeir eru alltaf sömu ormarnir:!:

 Svo loksins þá komst ég áðan í bónus það er búið að vera eins og sahara í ískápnum hjá mér eins og mamma mundi segja semsagt ekkert til og það var sko veslað svo það ætti að vera eitthvað til á næstunni :P

Ég keypti pítur í kvöldmatinn svo það er best að fara að gera það tilbúið

bæ bæ í bili

Aníta


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 09:46:38 / sisi

Sunnudagur...

:lol:

hæ hæ hæ..... Hún Aníta er nú bara búin að vera dugleg í því að blogga stelpan!! halda áfram að vera svona dúgleg sko :) Og eins gott að þú sért sko eitthvað að skána sko! En jæja ég er búin að vera föst í buxunum sem að mamma gaf mér.. þessar þanna bleiku sætu... þær eru bara rosa þæjilegar!!! Og líka gott að hlaupa í þeim....

Um daginn þá fór ég á strönd í firsta skipti og það var alveg geggjað gaman!!8| Ég fór sko útí sjóinn og alles.. og hann var bara næstum því heitur sem var alveg ótrulegt í mínum augum! Ótrúlegt en satt sjáiði til! Það var samt frekar heitt og mér leið soldið mikið eins og ég væri að stikna en þetta var samt fínt! væri alveg til í að fara attur :D
Svo í gær þá fórum ég Stebbi og Grétar hjá einhverju vatni þar sem að ég pissaði næstum í  mig af hræðslu þvi´að það voru svo margar flugur þar og þær vildu bara EKKI  láta mig í friði! En ég fann samt fullt af pínulitlum og sætum froskum sem að ég veiddi í flösku :D geggjað dúlló:haha:  Þegar ég kom með þá heim þá setti ég þá í box og fann handa þeim maura að borða en þeir vildu ekkert borða og vildu bara komast úr boxinu svo að ég byrjaði að vorkenna þeim og fór bara með þá útí garð til að sleppa litlu greyjunum!

Við fórum til horsens og uppí Trige því að við vorum að kveðja ömmu hanns Stebba sem var víst á leið til Íslands aftur.... Það var alveg bara rosa gaman og við komum heim einhvertíman seint um kvöldið! man ekki einusinni hvenar en ég man að ég fór beint uppí rúm og sofnaði ;) hehe Það er líka gott að sofa sjáiði til! zzzzz

Já ég gleymi alveg að seigja að ég er búin að sjá alla 2 seríu af O.C og omg það var svo skemmtilegt og endaði ekkert smá spennó! Ég bara fatta ekki hvernig þessir þættir geta verið svona spennandi allir.. ekki bara nokkrir heldur sko allir. En ég ætla að skella mér í sturtu eða eittthvað mér klæjar svo í hausinn minn :D !!

* Litla Rækjan *


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 14:18:11 / anitadogg

jæja

Hæ hæ það er nú ekki  mikið að frétta af mér hef eiginlega bara hangið hérna heima að reyna að gera heimilisverkin það hefur nú gengið ágætlega tekur reyndar ca helmingi lengri tíma en vanalega en þetta reddast:o

Ég er samt að lagast er farinn að labba hraðar var svoddan skjaldbaka fyrst:S Okkur er boðið í afmæli á morgun hjá Díönu eða Eyþóri réttara sagt Victoría er búin að vera lasinn var með yfir 39 stiga hita í gærkvöldi en er hress í dag vona að þetta sé bara farið úr henni svo við komumst á morgun:o

Í dag ætla ég bara að láta mér leiðast er að verða geðveik á að hanga hérna inni þegar maður getur voða lítið gert8|

Aníta beigla;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 14:27:57 / anitadogg

komnar myndir

Ég setti inn myndir af hjólinu í hjólamyndir svo sá ég að þú ert búinn að setja inn myndir Sísí loksins:lol:

Aníta


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6